Streita er hluti af ósjálfráðum viðbrögðum líkamans, varnarkerfi, sem fer í gang við álag. Streita er í eðli sínu jákvæð. Hún býr líkamann undir átök. Hann bregst við með því að hraða á hjartslætti og öndun og hækka blóðþrýsting. Vöðvaspenna eykst og ónæmiskerfið verður virkara meðal annars vegna aukins flæðis streituhormónsins adrenalíns.
Þetta ástand er líkamanum ekki hættulegt ef það varir ekki lengi í einu. Langvarandi og stöðug streita er hins vegar heilsuspillandi en þá minnkar mótstaða gegn veikindum og sjúkdómum. Svefntruflanir eru oft fyrsta merkið um streitu. Höfuðverkur, vöðvabólga í herðum og hálsi og magavandamál geta gert vart við sig. Blóðþrýstingur hækkar og aukin hætta er á hjarta- og æðasjúkdómum.
Önnur einkenni streitu
- Þreyta að morgni, þrátt fyrir samfelldan svefn nokkrar nætur í röð.
- Eirðarleysi og óróleiki eða skeytingarleysi um umhverfið.
- Viðbrögð þín við hversdaglegum atburðum breytast.
- Pirringur og óþolinmæði yfir smámunum.
- Magaverkur, spennuhöfuðverkur eða örari hjartsláttur.
- Einbeiting minnkar og þú verður gleymnari.
Viðvarandi streita móður á meðgöngu hefur áhrif á barnið, því streituhormónin fara yfir fylgjuna. Áhrifin á barnið eru þau sömu; óróleiki, eirðarleysi og hraðari hjartsláttur.
Það er því er mikilvægt að finna leið til að draga úr streitu.
Hvað er til ráða?
Fyrsta skrefið er að viðurkenna að þú finnir fyrir streitu. Reyndu að gera þér grein fyrir hvað það er í lífi þínu sem veldur streitunni. Gott er að skrifa það niður á blað. Skráðu einnig það sem er ánægjulegt en veldur samt streitu. Þá færðu yfirlit yfir ástandið og auðveldara er að bregðast við.
- Viðurkenndu að þú hefur ekki tíma til að gera allt.
- Forgangsraðaðu verkefnum.
- Endurskoðaðu þær kröfur sem þú gerir.
- Lærðu að hlusta á líkamann, hann gefur þér merki um að hægja á.
- Æfðu þig að segja nei.
- Gerðu hlutina rólegar en áður.
- Tryggðu þér nægan svefn.
- Regluleg hreyfing dregur úr streitu og bætir svefninn.
- Dragðu úr álagi í vinnu eins og unnt er.
- Taktu þér reglulega pásu í vinnunni.
- Láttu þá sem þú umgengst vita að þú sért að draga úr streitu.
Í meðgönguverndinni gefst tækifæri til þess að ræða andlega líðan.
Streita - Hvað er til ráða? (pdf-skjal)
Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.