Blendnar tilfinningar

Blendnar tilfinningar

Í flestum tilvikum vekur það gleði að fá þungun staðfesta. En tilfinningarnar eru oft blendnar og á það bæði við um hina verðandi móður og hinn verðandi föður. Hafi þungunin ekki verið ráðgerð getur hún eigi að síður verið velkomin. Stundum hefur það tekið langan tíma að verða barnshafandi og parið jafnvel gengið í gegnum langt og strangt ferli áður en það tókst.

Óháð því hver aðdragandinn er, geta tilfinningarnar sem vakna verið miklar og óvæntar. Blanda af gleði, áhyggjum, kvíða, ánægju og tilhlökkun og sveiflur á milli þessara tilfinninga er algeng líðan og eðlileg. Efasemdir um að tíminn sé réttur til að eignast barn geta gert vart við sig. Efi um að vera tilbúin í foreldrahlutverkið og efasemdir um makann geta kviknað. Þetta eru eðlilegar tilfinningar og vangaveltur á þessum miklu tímamótum í lífinu. Meðganga og fæðing geta vakið upp áður gleymdar eða duldar tilfinningar, vonir og ótta.

Ekki er víst að verðandi foreldrar deili þessum hugsunum en það er mikilvægt að ræða líðan sína.

Stundum finnst barnshafandi konum eins og ætlast sé til að þær finni eingöngu fyrir gleði og tilhlökkun alla meðgönguna. En það er ekki svo. Áhyggjur og efasemdir geta fylgt á meðgöngu ekki síður en gleði og tilhlökkun. Hvort sem um er að ræða fyrsta, annað eða þriðja barn, hefur það í för með sér breytingar á heimilinu. Til dæmis hvað varðar verkaskiptingu, útgjöld, tengsl við maka, undirbúning fæðingarinnar og umönnun nýja barnsins.

Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;