Ómskoðanir geta gefið mikilvægar upplýsingar en þær hafa sínar takmarkanir. Einstaka sinnum koma fram vísbendingar um að eitthvað sé athugavert en ekki er ávallt vitað hvort og þá hvaða þýðingu það hefur. Langoftast sést ekkert athugavert og fóstrið virðist heilbrigt.
Stundum vaknar grunur um/sjást frávik. Í einstaka tilvikum eru þau alvarleg en flest frávik eru þess eðlis að hægt er að meðhöndla þau. Þá er boðin ítarleg skoðun til að fá nákvæmari greiningu. Sú skoðun getur falið í sér litningarannsókn (legástungu), ómskoðun, sneiðmyndatöku eða blóðrannsókn, eftir því sem við á í hverju tilviki.
Ef niðurstöður leiða í ljós að um frávik er að ræða, er mikilvægt að fá upplýsingar um hvaða þýðingu það geti haft fyrir meðgönguna, fæðinguna, heilsu barnsins, horfur, meðferð og fleira sem við á og hægt er að segja til um á þessu stigi. Stundum er ekki hægt að meta frávik endanlega fyrr en síðar, jafnvel ekki fyrr en eftir fæðingu barnsins.Nýburalæknar, barnaskurðlæknar, sérfræðingar í hjartasjúkdómum barna, lýtalæknar og sérfræðingar í erfðasjúkdómum auk fæðingarlækna bjóða aðstoð sína og veita upplýsingar eins og hægt er hverju sinni.
Mikilvægt er að hafa í huga að það koma ekki öll frávik fram við ómskoðun.
Langflest börn fæðast heilbrigð.
Ljósmæður og læknar í meðgönguvernd og á ómskoðunar- og fósturgreiningadeildum svara fúslega öllum spurningum og vísa áfram í frekari ráðgjöf ef þörf er á.