Hreinlæti við matreiðslu

Hreinlæti við matreiðslu

- enn mikilvægara en áður

Hreinlæti í eldhúsinu kringum mat og matargerð og rétt meðhöndlun matvæla er alltaf mikilvægt en fær aukið vægi á meðgöngu þar sem skaðlegar bakteríur og sníkjudýr geta haft áhrif á heilsu bæði móður og barns. 

 


Gott er að hafa eftirfarandi atriði í huga við meðhöndlun matvæla og matargerð:

  • Mikilvægt er að þvo hendur vel fyrir matargerð og á eftir. Einnig eftir að hafa verið í snertingu við hrá matvæli, sand og mold.
  • Rétt er að skola allt grænmeti (líka það sem er keypt niðurskorið) og ávexti fyrir notkun.
  • Frosin matvæli ættu að þiðna í kæli en ekki í stofuhita til að hindra vöxt baktería. Gæta þarf þess að maturinn sé í ílátum sem tryggja að ekkert leki úr þeim yfir í önnur matvæli sem geymd eru í kælinum. Þiðnun í örbylgjuofni er í lagi ef varan er matreidd strax á eftir.
  • Fáar bakteríutegundir drepast við frystingu.
  • Alla matarafganga ætti að setja í kæli að máltíð lokinni.
  • Halda ætti soðnum matvælum frá hráum til að hindra krossmengun. 
  • Þvo ætti skurðbretti og önnur áhöld þegar skipt er úr einni gerð hráefnis yfir í aðra (svo sami hnífur og bretti séu til dæmis ekki notuð fyrir kjúkling og hrátt grænmeti).
  • Skipta ætti reglulega um borðtusku, viskastykki og uppþvottabursta.
  • Forðast ætti að leyfa húsdýrum að ganga á bekkjum og borðum þar sem matargerð fer fram.

 




 

Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.






            
                                                                                                                                                                                                                             


                                                                                                                        


 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;