Góður undirbúningur hefst snemma

Góður undirbúningur hefst snemma

Gott næringarástand móður fyrir meðgöngu er góður grunnur fyrir meðgönguna sjálfa; uppbygging fylgjunnar verður betri og það hefur góð áhrif á þroska og vöxt barnsins.

Sé móðirin verulega yfir kjörþyngd getur það átt þátt í /valdið ófrjósemi og konum sem eru of þungar þegar þær verða barnshafandi er hættara við ýmsum meðgöngukvillum eins og meðgöngusykursýki og meðgönguháþrýstingi. Þær eru einnig líklegri til að fara í keisaraskurð.

Konur sem eru undir kjörþyngd fyrir þungun eða í lélegu næringarástandi eru líklegri til að eignast létt og/eða vaxtarskert börn. Ekki er vitað á hvaða tímapunkti meðgöngu léleg næring hefur mest áhrif á fóstrið en rannsóknir benda til þess að það geti verið mjög snemma og að líkamlegt ástand  konu þegar hún verður þunguð geti skipt verulegu máli fyrir heilsu barnsins um ókomna tíð.

Mælt er með því að kona sem getur orðið þunguð hugi vel að heilsufari sínu með því að:

  • Borða fjölbreyttan og næringarríkan mat
  • Taka fólattöflu daglega
  • Hreyfa sig reglulega
  • Vera í kjörþyngd
  • Neyta ekki áfengis eða annarra vímuefna
  • Reykja ekki

Fæðuval foreldra mótar viðhorf barnsins til fæðunnar og hefur áhrif á mataræði þess til frambúðar. Meðgangan getur því orðið mikilvægur undirbúningstími. Flestir eru tilbúnir til þess að gera breytingar til hins betra á mataræði sínu og fjölskyldunnar á þessu tímabili. Það er því upplagt að nýta meðgöngutímann vel og gera breytingar ef þörf er á.

 

 

Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;