Hér eru hugmyndir að næringarríkum matseðlum:
Matseðill 1
Morgunmatur:
Cheerios (eða annað gróft morgunkorn) með léttmjólk eða léttri Ab mjólk + ávöxtur og lýsiMorgunkaffi:
Hrökkbrauð með léttu viðbiti, osti (17%) og papriku eða ávöxturHádegismatur:
Skyr.is, án viðbætts sykurs, 2 brauðsneiðar með léttu viðbiti, osti (17%), gúrku og tómötum. Vatn til drykkjarSíðdegiskaffi:
2 hrökkbrauð með léttsmurosti, gúrku og papriku o g 1 hafrakex með osti (17%) + léttmjólk (1 glas). Ávöxtur (t.d. banani)Kvöldmatur:
Ofnbökuð ýsa með súrmjólkursósu, gulrótum, blómkáli og spergilkáli + soðin hrísgrjónKvöldkaffi:
T.d. 2 hrökkbrauð m/áleggi og/eða ávöxtur
Matseðill 2
Morgunmatur :
2 brauðsneiðar með léttu viðbiti, osti (17%), tómötum og gúrku, 1 glas léttmjólk. Lýsi
Morgunkaffi :
Ávöxtur, t.d. epli
Hádegismatur :
Salat með gúrku, tómötum, papriku, eggi, pasta og ólífuolíu + brauðsneið með léttu viðbiti. Vatn eða sódavatn til drykkjar
Síðdegiskaffi :
4 hrökkbrauð með léttsmurosti og gúrku + appelsínusafi (1 glas).
Melóna (2 sneiðar) og vínber (ca 15 stk)
Kvöldmatur :
Lasagne (meðalskammtur) með salati og brauði. Vatn til drykkjar
Kvöldkaffi :
Ávöxtur og/eða popp (létt)
Júlí 2008.
Höfundar: Karítas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður Miðstöð mæðraverndar.
Matseðlar eru eftir Ragnheiði Ástu Guðnadóttur, næringarfræðing á Miðstöð mæðraverndar.