Æði - alveg eðlilegt

Æði - alveg eðlilegt

Flestir hafa heyrt sögur af konum sem sækja í að borða eitthvað óvenjulegt á meðgöngu. Sumar konur sækja í að borða mat sem þær venjulega borða ekki eða hefur ekki þótt góður.

Íslensk rannsókn þar sem konur voru spurðar að því hvort þær hefðu fundið fyrir löngun í ákveðin matvæli, leiddi í ljós að algengast er að konur langi í ís, appelsínur, aðra ávexti, frostpinna eða sætindi. Einnig kom í ljós að margar kvennanna hættu að drekka kaffi, gosdrykki, borða mikið kryddaðan mat, djúpsteiktan mat og lauk á meðgöngunni.

Áður var talið að þetta endurspeglaði þörf kvenna fyrir ákveðin efni í matnum en í dag er það ekki talin líkleg orsök. Líklegasta skýringin er talin vera breytingar á lyktar- og bragðskyni á meðgöngu.

 

Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;