Hugsanlegt er að barn geti þróað með sér jarðhnetuofnæmi fyrir fæðingu eða meðan það er á brjósti. Þetta hefur þó ekki endanlega verið staðfest.
Sé vitað um jarðhnetuofnæmi hjá nánustu ættingjum er ráðlegt að sleppa því að borða jarðhnetur á meðgöngu og meðan brjóstagjöf varir.
Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.