Matvæli sem ber að forðast eða takmarka

Matvæli sem ber að forðast eða takmarka

Rétt er að forðast hráa eða lítið eldaða rétti (kjöt, egg og fisk). Það er í lagi að borða kjötvöðva þó miðjan sé bleik (70°c) því heill kjötvöðvi er laus við bakteríur í miðju. Bakteríurnar finnast einungis á yfirborði kjötvöðvans. Hakkað kjöt skal alltaf steikja vel.

Til að draga úr líkum á sýkingu vegna bakteríunnar Listeria monocytogenes skal eingöngu drekka gerilsneydda mjólk.

Ekki er æskilegt að borða þroskaða mjúka osta t.d. Camembert, Brie og mygluosta sem framleiddir eru úr ógerilsneiddri mjólk. Í þeim geta verið góð vaxtarskilyrði fyrir ýmsar bakteríur. Íslenskir ostar eru unnir úr gerilsneyddri mjólk og rannsóknir sem gerðar hafa verið, gefa ekki til kynna að óttast þurfi neyslu á þeim. Þó er ástæða til að forðast osta sem hafa staðið lengi frammi við stofuhita.

Varast ætti neyslu á öllum tegundum kæfu (paté) sem framleidd er erlendis vegna bakteríunnar Listeria monocytogenes sem hugsanlega getur leynst í henni.

Forðast ætti neyslu lifra og lifrarafurða meðgöngunni þar sem þessi matvæli geta innihaldið töluvert magn
A-vítamíns.

Matvæli sem ber að forðast á meðgöngu:

  • Grafinn fiskur
  • Kaldreyktur fiskur
  • Harðfiskur
  • Sushi með fiski
  • Súrsaður hvalur
  • Þorskalifur
  • Hákarl
  • Sverðfiskur
  • Stórflyðra
  • Fýll
  • Fýlsegg
  • Ógerilsneidd mjólk
  • Mjúkir ostar og mygluostar unnir úr ógerilsneiddri mjólk
  • Paté framleidd erlendis
  • Lifur og lifrarafurðir
  • Hrá egg
  • Hrátt kjöt

Hvaða matvæli ber að forðast á meðgöngu? (pdf-skjal)


Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.
Efnið er fengið úr bæklingnumMatur og meðganga. Fróðleikur fyrir konur á barneignaaldri.  Bæklingurinn er unnin af sérfræðihóp á vegum Miðstöðvar mæðraverndar, Lýðheilsustöðvar og Umhverfisstofnunar, í samvinnu við Landlæknisembættið, 3. útg. 2008.



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;