Í fiski og öðrum sjávarvörum eru mikilvæg næringarefni sem lítið er af í öðrum mat, svo sem D-vítamín, joð og selen. Í fiskifitu er að finna omega -3 fitusýrur en þær eru nauðsynlegar fyrir þroska miðtaugakerfis fóstursins og því eykst þörfin fyrir þessa gerð fitusýra á meðgöngunni.Neysla á fiski og/eða lýsi á meðgöngu virðist einnig geta dregið úr líkum á fyrirburafæðingum.
Fiskneysla hefur í íslenskum rannsóknum reynst hafa jákvæð tengsl við fæðingarstærð barna en stærri nýburum virðist síður hætt við ýmsum sjúkdómum bæði snemma og síðar á lífsleiðinni en þeim sem minni eru.
Barnshafandi konum er því eindregið ráðlagt að borða fisk að minnsta kosti tvisvar í viku. Algengar fisktegundir sem finnast hér við land, svo sem ýsa, þorskur, smálúða, steinbítur, skötuselur, silungur og lax, eru heilnæm fæða sem barnshafandi konur ættu að njóta sem oftast.
Fiskur er hollur matur á meðgöngu - en hann á ekki að borða hráan
Hráan fisk, af hvaða tegund sem er, ætti hins vegar að forðast á meðgöngu vegna baktería s.s. Listeria monocytogenes, sem hugsanlega geta leynst í honum. Í einstaka sjávarafurðir safnast aðskotaefni (t.d. þungmálmar og þrávirk lífræn efni, svo sem PCB-efni), sem barnshafandi konum, konum með börn á brjósti og konum sem hyggja á barneignir er ráðlagt að forðast.
Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.