Hollusta í grænmeti og ávöxtum

Hollusta í grænmeti og ávöxtum

Grænmeti og ávextir hafa ýmsa góða kosti umfram það að innihalda fólat. Í grænmeti og ávöxtum er mikið af vítamínum, steinefnum og trefjum en fáar hitaeiningar. Það er því gott markmið fyrir verðandi móður að borða ,,5 á dag” það er fimm skammta af alls kyns ávöxtum og grænmeti á dag.




Fjölbreytnin ætti að vera í fyrirrúmi í vali á þessum afurðum sem öðrum. Grænmetið og ávextirnir geta verið á hvaða formi sem er: ferskir, þurrkaðir, frystir og matreiddir á ótal vegu.


 

Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;