Næringarríkur matur

Næringarríkur matur

Matur sem inniheldur hlutfallslega mikið af vítamínum og steinefnum miðað við orku, telst næringarríkur. Þau vítamín og steinefni sem við fáum úr fæðunni eru nauðsynleg til uppbyggingar vefja fósturs. Á meðgöngu er því aukin þörf fyrir þau.

Til þess að fullnægja þessari auknu þörf, eykst frásog þessara efna úr fæðunni og því mikilvægt að borða næringarríkan mat. Öll næring sem konan fær er einnig næring fyrir fóstrið/barnið. Næringarefnin fara úr meltingarvegi móður inn í blóðrás hennar og þaðan yfir til barnsins um fylgju og naflastreng.

Ef fæðan er næringarsnauð fær fóstrið þau næringarefni sem það þarfnast úr birgðum móðurinnar ef þær eru til staðar. Móðirin getur þá liðið skort sem getur leitt til þreytu, vanlíðunar og síðan alvarlegra fylgikvilla. Fóstrið getur þó ekki tekist á við hvaða ójafnvægi sem er í mataræði móður. Þyngist móðirin til dæmis lítið og borðar ekki vel, getur barnið orðið minna en annars hefði verið og því getur verið hættara við ýmsum kvillum í barnæsku. Það er jafnvel talið að það geti gert barnið viðkvæmara síðar á ævinni fyrir heilsufarsvandamálum eins og  hjartasjúkdómum og sykursýki.

Kona sem borðar næringarríkan og fjölbreyttan mat, fullnægir bæði eigin orku- og næringarefnaþörf og barnsins og þyngist sjálf hæfilega á meðgöngu. Kona með góðar matarvenjur fyrir þungun þarf ekki að breyta mataræði sínu mikið. Hún ætti þó að taka fólattöflu og sjá til þess að fá nóg af D-vítamíni. 

 


Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu. 


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;