Klíniskar leiðbeiningar um meðgönguvernd

Klíniskar leiðbeiningar um meðgönguvernd

Meðgönguvernd heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu.Meðgönguvernd heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu : klínískar leiðbeiningar (pdf-skjal)

 Landlæknisembættið gaf leiðbeiningarnar fyrst út í apríl 2008, en endurskoðuð önnur útgáfa kom út í apríl 2010. Þær eru ætlaðar ljósmæðrum, læknum  og barnshafandi konum.
Sjá ítarefni.

Gerð þessara leiðbeininga var samvinnuverkefni Fagráðs landlæknis um mæðravernd og vinnuhóps á vegum Miðstöðvar Mæðraverndar. Þær byggja á leiðbeiningum frá National Institute for Clinical Exellence (NICE). Yfirumsjón með verkefninu höfðu Anna Björg Aradóttir frá Landlæknisembættinu og Jóna Dóra Kristinsdóttir frá Miðstöð Mæðraverndar.

Leiðbeiningarnar byggja á því að meðganga er eðlilegt lífeðlisfræðilegt ferli og inngrip í það ferli skulu hafa þekkta kosti og vera ásættanleg fyrir hina barnshafandi konu.

Á vef  Landlæknisembættisins eru klínískar leiðbeiningar skilgreindar á eftirfarandi hátt:
"Klínískar leiðbeiningar (clinical guidelines) eru leiðbeiningar (ekki fyrirmæli) um verklag, unnar á kerfisbundinn hátt, til stuðnings starfsfólki í heilbrigðisjónustu og almenningi við ákvarðanatöku við tilteknar aðstæður. Þær taka mið af bestu þekkingu á hverjum tíma og eru lagðar fram í því skyni að veita sem besta meðferð með sem minnstri áhættu án óhóflegs kostnaðar"

 

 

 


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Mæðravernd

Þönglabakki 1, 109 Reykjavík
Sími: 585-1350, Fax: 585-1370
Netfang:
throunarstofa@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

alla virka daga kl. 8:20 til 16:15


Strætó - Mjódd

Leiðarnúmer Strætó:
Fara á www.bus.is


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;