Skoðanir í meðgönguvernd

Skoðanir í meðgönguvernd

Fyrsta koma í meðgönguverndina er við 8-12 vikur.

Í viðtalinu eru almennar upplýsingar um heilsufar skráðar ásamt fyrri meðgöngu-og fæðingarsögu ef við á. Upplýsingarnar eru færðar í mæðraskrá sem fylgir konunni alla meðgönguna og í fæðinguna.
                                                                                                                                                                                                                   Boðið Boðið er upp á fjölda skimana í meðgönguverndinni. Tilgangur þessara skimana er að athuga hvort eitthvað komi í ljós sem gæti haft áhrif á heilsufar  móður og barns á meðgöngunni. Skimað er meðal annars fyrir blóðleysi, lifrarbólgu B, HIV, rauðum  hundum og sárasótt. Einnig er tekið blóðsýni í blóðflokkun. Boðið er upp á ómskoðanir og aðrar fósturrannsóknir í samstarfi við Fósturgreiningardeild Landsspítalans

Búast má við að fyrsta viðtal geti tekið allt að eina klukkustund. Aðrar komur geta tekið 20-30 mínútur.

Í hverri komu er rætt um almenna líðan og heilsufar. Blóðþrýstingur er mældur og athugað er hvort prótein finnst í þvagi. Frá 12. viku er hægt að hlusta eftir hjartslætti fóstursins og frá 20.viku er stærð legsins mæld, frá lífbeini að legbotni. Við 36. viku er lega barnsins metin.

Þarfir verðandi móður/ foreldra eru metnar í hverri skoðun og veitt er fræðsla og ráðgjöf eins og við á hverju sinni. 

Í meðgönguverndinni gefst tækifæri til umræðna og spurninga (t.d. um líðan, mataræði, hreyfingu, skimanir á meðgöngu, fósturrannsóknir, þjónustu sem er í boði á meðgöngu, val á fæðingarstað, fæðinguna, bjargráð í fæðingu, fæðingarorlof, brjóstagjöf, sængurlegu og fleira).    
                                                                         
Fjöldi skoðana á meðgöngu getur verið mismunandi, frumbyrjur koma oftar í skoðun en fjölbyrjur. Nánari upplýsingar um meðgönguvernd heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu má finna í klínískum leiðbeiningum um meðgönguverndina.
                   
Eldri systkini eru velkomin með í meðgönguverndina.

 

Bæklingar:


Yfirfarið: Í janúar 2009. 
Höfundar: Karítas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður Miðstöð mæðraverndar.

 

 

 

 


 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Læknisþjónusta

Læknisþjónusta Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Mæðravernd

Mæðravernd

Ungbarnavernd

Ungbarnavernd

Skólaheilsugæsla

Skólaheilsugæsla

Heimahjúkrun

Heimahjúkrun


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;