Heilsugæslu í skólum hverfisins er sinnt af hjúkrunarfræðingum og læknum stöðvarinnar. Hjúkrunarfræðingar hafa fastan viðverutíma í Fellaskóla og Hólabrekkuskóla.
Tilgangur skólaheilsugæslu er að fylgjast með heilsu, þroska, líðan og högum barna á grunnskólaaldri.
Hlutverk hennar er að stuðla að líkamlegu, andlegu og félagslegu heilbrigði skólabarna og að greina og sinna heilbrigðisvandamálum sem hafa áhrif á velferð nemenda og námsgetu. Einnig að meta þá þætti í umhverfi og aðstæðum barna sem hafa áhrif á heilsu og líðan þeirra.
Boðið er upp á reglulegar skoðanir, viðtöl og fræðslu ásamt bólusetningum.
Skólar sem stöðin veitir þjónustu eru Fellaskóli, Hólabrekkuskóli og Waldorfskólinn Sólstafir.