Niðurstöður úr 19-20 vikna skimun

Niðurstöður úr 19-20 vikna skimun

Í 19-20 vikna skimun lítur oftast allt eðlilega út, fóstrið virðist heilbrigt og dafna vel. Skimunin er því ánægjuleg upplifun fyrir flesta. En það á því miður ekki við um alla.

Frávik – hvað þá?

Í þeim tilvikum sem 19-20 vikna skimun sýnir frávik eru þvagfæra- og hjartagallar algengastir, en þeir eru misalvarlegir. Önnur frávik sem geta komið í ljós eru m.a. miðtaugakerfisgallar, meltingarfæragallar, klofin vör og klumpufótur. Það fer eftir eðli frávika hvert næsta skref er.


Hægt er að fá upplýsingar og boðin er ítarlegri skoðun til að fá nákvæmari greiningu. Sú skoðun getur falið í sér litningarannsókn (legástungu), ómskoðun, sneiðmyndatöku eða blóðrannsókn, eftir því sem við á í hverju tilviki. Stundum er boðið upp á fleiri ómskoðanir á meðgöngunni til að fylgjast með ástandi barnsins.


Mörg þessara frávika er hægt að meðhöndla með aðgerð eða annarri meðferð eftir fæðingu. Mörgum þykir gott að geta nýtt tímann fram að fæðingu til þess að búa sig undir að annast barn sem þarfnast sérhæfðrar meðferðar eða aðgerðar. Það er hjálplegt og mikilvægt að fá greinargóðar upplýsingar um þá valkosti sem eru í stöðunni hverju sinni og gott er að spyrja jafnóðum um það sem þykir óljóst.

Þú getur staðið frammi fyrir því að þurfa að taka erfiðar ákvarðanir

  • Þú getur valið að þiggja ekki fósturgreiningu 
  • Þú getur þurft að taka ákvörðun um hvort þú vilt þiggja fósturgreiningu með litningarannsókn með þeirri áhættu sem henni fylgir 
  • Þú getur þurft að taka ákvörðun um hvort þú viljir ljúka meðgöngunni með fóstureyðingu

Viljir þú ekki vita fyrir fæðingu hvort barnið þitt hefur einhver frávik sem hægt er að sjá í 19-20 vikna skimun, ættir þú ef til vill ekki að þiggja skimunina.

Yfirfarið: júní 2009.  
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.

 

 

 


 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;