Það fer eftir því hvaða rannsókn er gerð hvenær niðurstöður liggja fyrir. Reynt er að flýta því eins og kostur er.
Þegar fylgjuvefsýni er tekið fæst bráðabirgðasvar um teimur sólarhingum síðar, en það tekur um það bil tvær vikur að fá lokasvar. Þegar legvatnssýni er tekið liggja niðurstöður fyrir að tveimur vikum liðnum.
Það er eðlilegt að kvíði, streita og áhyggjur geri vart við sig á meðan beðið er eftir ítarlegri skoðun og niðurstöðum. Mikilvægt er að reyna að draga úr vanlíðan og ræða málin.
Gott er að hafa í huga þá staðreynd að flestar konur sem fara í fósturgreiningu vegna niðurstöðu skimunar um auknar líkur á litningafráviki, fá þá niðurstöðu að barnið þeirra sé með eðlilega litningagerð. Þær upplýsingar nægja sumum til að draga úr kvíða, á meðan aðrir hafa þörf fyrir að ræða þetta frekar.
Frávik - hvað þá?
Ef niðurstaðan úr fósturgreiningunni er sú að barnið þitt hafi eitthvert þeirra litningafrávika sem verið var að leita að, eða önnur alvarleg frávik, stendur þú frammi fyrir því að þurfa að taka erfiðar ákvarðanir.
Valkostirnir í stöðunni eru:
- Þú getur valið að halda meðgöngunni áfram og búa þig undir fæðingu og umönnun barns sem gæti þurft á sérhæfðri meðferð eða aðgerð að halda eða að búa þig undir fósturlát eða fæðingu barns sem að öllum líkindum mun deyja fljótlega eftir fæðingu
- Þú getur valið að halda meðgöngunni áfram og gefa barnið til ættleiðingar
- Þú getur valið að ljúka meðgöngunni með fóstureyðingu
Það er þitt að ákveða (ykkar verðandi foreldra) hvaða kost þú velur og annarra að styðja þig í þeirri ákvörðun og virða hana.
Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.