Fósturgreining

Fósturgreining

Fósturgreining er rannsókn gerð til þess að greina litningagerð fósturs og frávik. Fósturgreining er gerð með ómskoðun, blóðsýnatöku eða sneiðmyndatöku.

Til þess að greina litningagerð fósturs þarf að gera legástungu og taka fylgjuvefsýni eða legvatnssýni. Legástungu fylgir um 1% hætta á fósturláti.

 

Fósturgreining er í boði ef:

  • 11- 14 vikna skimun eða 19-20 vikna skimun gefa vísbendingu um frávik t.d. ef um er að ræða aukna hnakkaþykkt eða sköpulagsgalla fósturs
  • kona hefur áður fætt eða gengið með barn með litningafrávik
  • kona hefur áður fætt eða gengið með barn með alvarlegt frávik
  • verðandi foreldri eða einstaklingur í nánustu fjölskyldu er með litningafrávik
  • verðandi foreldri eða einstaklingur í nánustu fjölskyldu er með alvarlegt frávik
  • kona er 35 ára eða eldri og kýs að sleppa samþættu líkindamati við 11-14 vikur

Legástunga er gerð á Fósturgreiningadeild Landspítala og greiða þarf fyrir rannsóknina hafi konan ekki farið í
11-14 vikna skimun áður.


Yfirfarið: júní 2009. 
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.


 

 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;