Fjölskyldum sem búsettar eru á þjónustusvæði stöðvarinnar eða sem eru skráðar hjá heimilislæknum á stöðinni býðst þjónusta á meðgöngu. Markmiðið er að stuðla að farsælli meðgöngu með faglegri umönnun, fræðslu og stuðningi.
Æskilegt er að þungaðar konur komi í fyrstu skoðun 10-12 vikum eftir síðustu blæðingar en velkomið er að hafa samband við lækni eða ljósmóður fyrr ef óskað er.
Fjöldi mæðraskoðana fer eftir aðstæðum, algengt er 8-10 skipti. Faðir eða annar stuðningsaðili og eldri systkini eru velkomin með.