Fósturskimun

Fósturskimun

Boðið er upp á fósturskimun við 11-14 vikur og 19-20 vikur. 

11-14 vikna skimun

11-14 vikna skimun er gerð með ómskoðun á fóstrinu og blóðsýnatöku hjá verðandi móður. 

Fósturgreiningadeild Landspítalans og Kvennadeild Sjúkrahússins á Akureyri bjóða öllum verðandi foreldrum skimun til þess að meta líkur á litningafrávikum við 11-14 vikna meðgöngu.

Greiða þarf fyrir skoðunina.



 

19-20 vikna skimun

19-20 vikna skimun er gerð með ómskoðun á fóstrinu.

Fyrir verðandi foreldra sem búa á höfuðborgarsvæðinu fer skoðunin fram á Fósturgreiningadeild Landspítalans. Ómskoðun er einnig gerð á Akureyri, Akranesi, Ísafirði, Neskaupsstað, Keflavík, Sauðárkróki, Seyðisfirði, Selfossi og Vestmannaeyjum. 

Skimun við 19-20 vikur er verðandi foreldrum að kostnaðarlausu.




Yfirfarið: júní 2010. 
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.

 

 

 

 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;