Ómskoðun

Ómskoðun

Við ómun sendir ómskoðunartækið (ómhausinn) frá sér hátíðnihljóðbylgjur. Bergmáli þeirra er breytt í svarthvíta sneiðmynd sem birtist á skjá. Til þess að betur sjáist á skjáinn er rökkur haft í herberginu þar sem skoðunin fer fram. Sérstakt ómskoðunarhlaup er notað til að hljóðbylgjurnar komist auðveldar yfir í þá vefi sem á að skoða.

Ekki er vitað til þess að ómskoðun, eins og hún er framkvæmd til skimunar og greiningar á meðgöngu, sé skaðleg móður eða barni.

Notaðar eru tvær gerðir af ómhaus. Þurfi að skoða um leggöng er ómhausinn langur og mjór. Ef skoðað er um kviðvegginn er ómhausinn styttri og breiðari (sjá mynd).

Við ómskoðun leggst hin verðandi móðir á bekk. Ef skoða þarf um leggöng þarf hún að fara úr buxunum og e.t.v. setja fæturna upp í stoðir. Ómskoðunarhlaupið er sett í smokk sem settur er á ómhausinn og honum síðan rennt upp leggöngin. Þannig kemst ómhausinn nær leginu og auðveldara er að skoða smátt fóstur. Þessi aðferð er aðallega notuð í upphafi meðgöngu, fyrstu 6-10 vikurnar. Stundum þarf að skoða fylgjustaðsetningu eða leghálsinn um leggöng. 

Þegar ómskoða á um kviðvegginn er hlaupinu hellt á kviðinn og ómhausnum er rennt kerfisbundið til og frá yfir kviðinn til þess að sjá fóstrið. Til þess að gera mælingar á fóstrinu er skjámyndin "fryst".

Það er ekki sárt að fara í ómskoðun, hvort sem er ómskoðað um leggöng eða kvið, en stundum þarf að þrýsta ómhausnum þéttingsfast yfir kviðinn til þess að fá skýra mynd af því sem verið er að skoða. Ef skoðunin gengur vel tekur hún um það bil 10-30 mínútur.

Stundum eru skilyrðin erfið og þá þarf lengri tíma. Ef móðirin er í yfirþyngd getur verið erfitt að fá góða mynd af fóstrinu. Einnig getur fóstrið legið í þannig stellingu eða verið á svo mikilli hreyfingu að erfitt er að sjá vel til. Stundum þarf að endurtaka hluta skoðunarinnar síðar.

Yfirfarið: mars 2010. 
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.

 

 

 

 

 

 

 


 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;