Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er:
að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi.
Samkvæmt 4. grein laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 nær heilsugæsluþjónusta yfir almennar lækningar, hjúkrun, heilsuvernd og forvarnir, bráða- og slysamóttöku og aðra heilbrigðisþjónustu sem veitt er á vegum heilsugæslustöðva.
Stefna Heilsugæslu höfuborgarsvæðisins er:
- að vera fyrsta val þeirra sem þurfa á almennri heilbrigðisþjónustu að halda
- að vera framsækinn og ábyrgur aðili í íslenskri heilbrigðisþjónustu
- að hafa jákvæð áhrif á líf almennings
- að vera talinn eftirsóknarverður vinnustaður
Markmið Heilsugæslu höfuborgarsvæðisins er:
- að veita þeim sem til hennar leita áhrifaríka og góða heilbrigðisþjónustu
- að bjóða samfellda, aðgengilega og heildræna þjónustu
- að stunda árangursríkan og hagkvæman rekstur
- að heildarskipulag og verkaskipting innan og milli heilsugæslustöðva styðji við framtíðarsýn
- að notuð sé viðeigandi og skilvirk upplýsingatækni
- að stundað sé stöðugt og metnaðarfullt rannsóknar- og fræðslustarf