Heilsugæslan Hvammi er hverfisstöð og þjónar íbúum Kópavogs sem búa austan Digranesvegar og Bröttubrekku, sunnan Kópavogslækjar (Fífuhvamms) og sunnan Nýbýlavegar (með Hólmum). Stöðin hóf starfsemi vorið 1999.
Starfsemi stöðvarinnar er fjölþætt, almenn læknis- og hjúkrunarþjónusta, heilsuvernd og fleira.
Á stöðinni er veitt samfelld þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Tekist er á við öll heilsufarsleg vandamál og reynt að leysa úr þeim. Ef á þarf að halda er veitt ráðgjöf við val á sérfræðiþjónustu.
Það er markmið okkar að skjólstæðingum mæti þægilegt viðmót er þeir sækja þjónustu á stöðina og starfsfólk sýni öllum virðingu, skilning og þolinmæði.