Æðahnútar

Æðahnútar

Æðahnútar stafa m.a. af auknum þrýstingi frá leginu á æðarnar sem liggja frá grindinni og auknu vökvamagni í blóðrásarkerfinu. Æðaveggirnir sem eru slakari á meðgöngunni vegna áhrifa frá prógesterón hormóninu, gefa meira eftir og álag á æðalokurnar eykst. Æðahnútar geta komið í ljós á fótum, á skapabörmum og við endaþarm (gyllinæð).



Með trefjaríku mataræði og nægri vökvainntöku er hægt að koma í veg fyrir hægðatregðu, sem getur valdið slæmri gyllinæð. Til eru bæði krem og stílar við gyllinæð, og sem draga úr einkennum vegna æðahnúta.

Stuðningssokkar geta dregið úr einkennum og óþægindum í fótleggjum, en þeir koma ekki í veg fyrir myndun æðahnúta. Einnig getur hjálpað að sitja/liggja með hærra undir fótum, forðast langar setur eða stöðu í sömu stellingu og sofa á vinstri hlið.


Gerðu léttar fótaæfingar, svo sem lyftu þér upp á tábergið og hreyfðu fætur í hringi um ökklann. Það eykur blóðflæðið og dregur úr álagi. Fylgstu með einkennum um bólgu, hita og roða.

Ráðfærðu þig við ljósmóður eða lækni.  

 



Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.


 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;