Sinadrættir, pirringur í fótum eða þreyta stafa trúlega af auknum þrýstingi frá leginu á taugar sem liggja um grindina. Regluleg hvíld með hátt undir fótum getur verið til bóta.
Léttar æfingar svo sem teygjuæfingar fyrir vöðvana í kálfunum og að lyfta sér upp á tábergið gagnast oft vel. Þessar æfingar má gera nokkrum sinnum á dag.
Hreyfing í vatni getur hjálpað og því gott að synda reglulega.
Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.