Mikilvægt er að vera meðvitaður um líkama sinn og gæta að líkamsstöðunni. Forðast ber æfingar og stöður sem reyna á bak og grind.
Mikilvægt er að hreyfa sig reglulega alla meðgönguna. Léttar gönguferðir og sund henta vel á meðgöngu. Víða er boðið er upp á meðgönguleikfimi í vatni og meðgöngujóga. Stuðningsbelti eða stuðningsbuxur geta létt á bakinu, og nudd og heitir bakstrar í lok dags geta líka hjálpað.
Slæmir grindarverkir
Einstaka kona finnur fyrir slæmum grindarverkjum á meðgöngu. Ástæður eru margþættar og ekki er vitað með vissu hvers vegna sumar konur finna fyrir verkjum en aðrar ekki.
Verkir geta komið frá lífbeini og/eða spjaldliðum. Liðbönd í grindinni mýkjast vegna hormónabreytinga á meðgöngu og verða þá eftirgefanlegri. Þegar liðböndin mýkjast getur konan fengið verki. Liðböndin styðja þá ekki eins vel við mjaðmagrindina og þola minna álag en áður.
Góð líkamsstaða er mjög mikilvæg og í mörgum tilvikum er hægt að draga úr slæmum einkennum með réttri líkamsbeitingu. Nauðsynlegt er að komast hjá sársaukafullum hreyfingum. Ljósmæður, læknar og sjúkraþjálfarar veita ráð.
Grindarverkir á meðgöngu hafa ekki áhrif á gang fæðingar en gott er að ráðfæra sig við ljósmóður í sambandi við stöður og stellingar í fæðingunni.
Sýnt hefur verið fram á að nálarstungur geti hjálpað mörgum konum sem hafa grindarverki. Sérstök stuðningsbelti sem valin eru í samráði við sjúkraþjálfara geta hentað í ákveðnum tilvikum. Nudd og heitir bakstrar geta dregið verulega úr verkjum.Meðgönguleikfimi í vatni undir handleiðslu sjúkraþjálfara hefur gagnast mörgum svo og önnur meðferð hjá sjúkraþjálfara.
Ráðfærðu þig við ljósmóður eða lækni ef verkir eru miklir á meðgöngunni.
Bæklingur: Mjaðmagrindarverkir á meðgöngu (pdf-skjal)
Í honum má finna fræðslu og leiðbeiningar sem geta létt daglegt líf barnshafandi kvenna.