Eðlileg útferð?
Öllum kynþroska konum er eðlilegt að hafa útferð frá leggöngum og er hún tilkomin vegna endurnýjunar fruma í leggöngum. Hjá flestum konum eykst útferð á meðgöngunni, sérstaklega síðustu vikurnar. Eðlileg útferð getur verið glær, gulleit eða mjólkurhvít og getur magn og þykkt verið mismunandi. Engin óþægindi s.s. kláði eða vond lykt fylgja eðlilegri útferð.
Hluti af eðlilegu leggangaflórunni er sveppurinn candida albicans en hann er mjög næmur á sýrustigið í leggöngum. Ef sýrustigið hækkar fer hann að fjölga sér óhóflega og veldur þá gjarnan óþægindum eins og kláða og sviða sem getur þurft að veita meðferð við. Á meðgöngu er algengt að sýrustigið hækki og óþægindi vegna sveppasýkinga því heldur tíðari. Sýkingar af þessu tagi eru ekki hættulegar en geta valdið mismiklum óþægindum.
Óeðlileg útferð?
Útferð er talin óeðlileg þegar hún breytir um lit, verður t.d. grænleit eða brúnleit, þegar hún er illa lyktandi, þegar hún veldur óþægindum, kláða eða sársauka í leggöngum.
Algengasta orsök óeðlilegrar útferðar er sýking af völdum baktería, sveppa eða veira.
Leitaðu ráða hjá lækni eða ljósmóður í meðgönguverndinni.
Eðlileg útferð? (pdf-skjal)
Óeðlileg útferð? (pdf-skjal)
Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.