Hægðatregða

Hægðatregða

Breyting sem verður á starfsemi meltingarfæranna á meðgöngu  getur leitt  til harðlífis og hægðatregðu.

Hægðatregða er algengara vandamál á síðasta þriðjungi meðgöngunnar en getur komið á öðrum tíma. Þær konur sem hafa slíka tilhneigingu fyrir þungun ættu að gera viðeigandi ráðstafanir snemma á meðgöngunni. Þannig er hægt að koma í veg fyrir versnandi harðlífi, hægðatregðu og jafnvel gyllinæð. Harðlífi og hægðatregða valda ýmsum óþægindum og vanlíðan og auðveldara er að koma í veg fyrir slík vandamál en að leysa þau.
                                                                                            
Aukin  neysla á trefjum og vökva er mikilvægust. Grænmeti, ávextir og grófar kornvörur ættu því að vera á matseðlinum þínum daglega. Borðaðu gróft brauð og gróft morgunkorn í stað þess sem er unnið úr fínu hveiti. Gráfíkjur, döðlur, sveskjur og kíví gagnast t.d. oft vel til að bæta meltinguna. Allt grænmeti er trefjaríkt, hvort sem það er borðað hrátt eða eldað.

Drekktu vel af vökva og er vatnið best. Hafðu í huga að kaffi og te eru vökvabindandi.

Dagleg hreyfing skiptir verulegu máli fyrir eðlilega meltingu, stundum nægir eingöngu að auka hreyfinguna daglega til að bæta meltinguna. Rösk ganga úti eða á hlaupabretti, sund og önnur hreyfing ætti því að geta hjálpað. 

Dugi þessi ráð ekki til mætti reyna hægðalosandi lyf. En það er ekki sama hvaða lyf eru notuð á meðgöngu.

Ráðfærðu þig við ljósmóðurina í meðgönguverndinni eða lækni.

Hægðatregða - Hvað er til ráða? (pdf-skjal)

Yfirfarið: júní 2009
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.


 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;