Ógleði og væg uppköst í upphafi meðgöngu eru eðlileg þungunareinkenni. Talið er að allt að 90% kvenna finni fyrir einhverri ógleði á meðgöngutímanum með eða án uppkasta.
Einkennin geta verið mismikil og koma oftast fram á 5.-6. viku meðgöngu og ganga oftast yfir á 16.-18. viku. Um 15-20% kvenna geta þó haft einkenni fram að 27. viku og 5% hafa einkenni út alla meðgönguna.
Þungunarhormón er talið helsti orsakavaldur, ásamt breytingum á efnaskiptum, meltingu og tilfinningalegri líðan. Lyktarskynið verður oft næmara og getur það jafnvel valdið eða aukið við ógleðina. Þrátt fyrir vanlíðan móður hafa rannsóknir sýnt að ógleði og væg uppköst eru ekki skaðleg fóstrinu og hefur ekki slæm áhrif á meðgönguna eða fæðinguna.Það reynist mörgum hjálplegt að borða fleiri smærri máltíðir en færri stærri máltíðir.
Einnig mætti reyna sódavatn, ávaxtasafa og jafnvel gos. Oft reynist vel að drekka vökva á milli máltíða í stað þess að neyta hans með máltíðunum.
Ferska, safaríka ávexti eins og melónur eða perur er gott að hafa til taks. Engifer reynist mörgum gagnlegt. Nota mætti það í mat og te. Finndu hvaða fæðutegundir hafa góð áhrif á líðanina.
Forðast ætti feitan, mikið kryddaðan og brasaðan mat, hann gerir ástandið yfirleitt verra. Einnig ætti að forðast aðstæður sem gera líðanina verri svo sem þungt loft í vistarverum, ilmvatnslykt, tóbaksreyk, hita, raka og hávaða.
Þrýstipunktanudd á P6 punktinn á úlnlið getur reynst gagnlegt til að draga úr einkennum. (Sjá mynd)
Ef ógleðinni fylgja mikil uppköst er afar nauðsynlegt að drekka vel og hvílast. Álag getur gert líðan verri og stundum er best að hreyfa sig sem minnst meðan ástandið er sem verst. Þegar líðan er með betra móti mætti reyna að fara út í létta göngu eða stunda þá hreyfingu og líkamsrækt sem hentar hverju sinni.
Ráðfærðu þig við ljósmóður eða lækni í meðgönguverndinni ef þessi ráð duga ekki.
Gættu að því að láta ekki líða of langan tíma á milli máltíða því sveiflur í blóðsykri geta aukið á vanlíðan og ógleði. Borðaðu á 2-3 klst fresti yfir daginn: 5-6 litlar máltíðir. Gættu þess að drekka vel af vatni.
Þegar uppköstin eru mikil og erfitt er að halda vökva niðri, er nauðsynlegt að leita til læknis eða ljósmóður.
Ógleði. Hvað er til ráða? (pdf-skjal)
Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.