Barnshafandi?

Barnshafandi?

Helstu einkenni þungunar eru tíðastopp, spenna og eymsli í brjóstum, þreyta og ógleði. Ef grunur vaknar um þungun er fyrsta skrefið að fá það staðfest. Ein leið til þess er að kanna það með þungunarprófi. Þau fást í apótekum og sumum matvöruverslunum.

Þungunarpróf

Við þungun myndast hormón í líkamanum sem kallast human chorionic gonadotrophin (HCG). Þungunarprófin finna þetta hormón í þvagi. Þungunarpróf eru mjög áreiðanleg ef farið er nákvæmlega eftir leiðbeiningunum sem fylgja prófinu.

Flest þungunarpróf eru marktæk frá þeim degi sem tíðablæðingar áttu að hefjast, almennt er það um tveimur vikum eftir getnað. Prófið má framkvæma á hvaða tíma dags sem er, en hormónastyrkurinn er mestur í þvaginu fyrst að morgninum. Forðast skal að drekka mikinn vökva áður en prófið er gert, það getur þynnt hormónamagnið í þvaginu.

Jákvætt þungunarpróf

Ef þungunarprófið er jákvætt er næstum fullvíst að um  þungun sé að ræða  og gott að panta fyrsta viðtal í meðgönguvernd. Mælt er með að fyrsta viðtal í meðgönguverndinni fari fram við 8-12 vikna meðgöngu.

 


Neikvætt þungunarpróf

Neikvætt þungunarpróf þýðir ekki alltaf að ekki sé um þungun að ræða. Er prófið gert of snemma? (Áður en tíðablæðingar áttu að hefjast?). Ef þig grunar þungun þrátt fyrir neikvætt próf, ættir þú að endurtaka prófið viku síðar. Ef það er líka neikvætt og tíðablæðingar ekki byrjaðar ættirðu að ræða við lækni.

Staðfesting þungunar

Ef spurning er um meðgöngulengd, einkenni þungunar eða annað tengt meðgöngunni ætti að ráðfæra sig við ljósmóður eða lækni fljótlega eftir að þungun er staðfest. Ljósmæður á heilsugæslustöðvunum bjóða upp á símatíma og svara spurningum og veita ráðleggingar.

 

Ráðleggingar og aðstoð

Ef þú ert ekki nú þegar að taka fólattöflu daglega ættirðu að byrja á því. Mælt er með því að barnshafandi konur taki fólattöflu að minnsta kosti fyrstu 12 vikur meðgöngu. Almennt er ekki er talin þörf á að taka önnur bætiefni á meðgöngu en fólat og D-vítamín.

Ef þú ert með einhvern sjúkdóm, tekur lyf, eða átt við heilsufarsvandamál að stríða ættir þú að ráðfæra þig við lækni eða ljósmóður sem fyrst.

Barnshafandi konur ættu ekki að neyta tóbaks, áfengis eða annarra vímuefna. Ef þú átt erfitt með að hætta neyslu tóbaks, áfengis eða vímuefna án aðstoðar, ættirðu að leita ráða hjá ljósmóður eða lækni sem fyrst.

Boðið er upp á stuðning til reykleysis á Miðstöð mæðraverndar. Pantanir í síma 585-1400.

Óvelkomin þungun

Ef þungunin er óvelkomin og þú íhugar að ljúka þunguninni með fóstureyðingu eða treystir þér ekki til að eiga barnið, getur þú haft samband við félagsráðgjafa Kvennasviðs Landspítala til að fá ráðgjöf. Símatími félagsráðgjafa er alla virka daga frá kl. 9:00-10:00. Síminn er 543-3600.

 
Yfirfarið: júní 2011.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.
Stuðst var m.a. við efni frá NHSdirect: www.nhsdirect.nhs.uk, sótt í október 2007.
 

 

 

 


 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;