Meðganga, fæðing og sængurlega

Meðganga, fæðing og sængurlega

Meðgönguverndin

Meðgönguvernd er í boði á öllum heilsugæslustöðvunum og er þjónustan ókeypis. Meðgönguvernd er í höndum ljósmæðra í samvinnu við heilsugæslulækna. Samvinna er á milli þeirra og fæðingarlækna á Miðstöð mæðraverndar.

Boðið er upp á fjölda skimana í meðgönguvernd. Tilgangurinn er að athuga hvort eitthvað kemur í ljós sem getur haft áhrif á heilsu móður og barns á meðgöngunni. Ómskoðun er boðin við 20 vikur, til að staðfesta meðgöngulengd, fjölda fóstra, staðsetningu fylgju og skoða líkamsgerð fósturs. Ómskoðunin er gerð í samvinnu við fósturgreiningadeild Landspítala og fer þar fram.

Landspítali/fósturgreiningadeild býður upp á fósturrannsóknir; fósturskimanir og fósturgreiningu. Tilgangur þessarar skimunar er að meta líkur á litningafráviki  hjá fóstri, meta meðgöngulengd og athuga fjölda fóstra. Einnig er líkamsgerð fósturs skoðuð eins vel og unnt er á þessum tíma með tilliti til sköpulagsgalla.

Þessi skoðun er ekki hluti af meðgönguverndinni en stendur öllum verðandi foreldrum til boða. Greiða þarf fyrir þessa skoðun. Hægt er að þiggja 11-14 vikna ómskoðun án þess að metnar séu líkur á litningafráviki. 

Námskeið um undirbúning fæðingar  eru í boði á heilsugæslustöðvunum. Á Miðstöð mæðraverndar eru slík námskeið í boði á ensku og pólsku ásamt sérhönnuðu námskeiði fyrir verðandi tvíburaforeldra. Fræðsla um brjóstagjöf, fræðsla sjúkraþjálfara og fræðsla fyrir verðandi feður er einnig í boði á Miðstöð mæðraverndar. Miðstöð mæðraverndar er staðsett á Þönglabakka 1. Sími: 585 1400.

Fæðingin

Á höfuðborgarsvæðinu eru tvær fæðingardeildir, Hreiðrið og Fæðingardeild 23-A, báðar á Kvennadeild Landspítalans.
Fæðingardeildin þjónar öllum fæðandi konum frá 22-24 vikna meðgöngu, hvort sem þær eru í eðlilegri fæðingu eða þarfnast sérstaks eftirlits. 

Hreiðrið  er bæði fæðingar- og sængurlegudeild. Þar geta allar heilbrigðar konur fætt eftir 37–42ja vikna eðlilega meðgöngu sem ganga með eitt barn. Ekki er gert ráð fyrir að kona noti mænurótardeyfingu í fæðingu í Hreiðrinu. 

Boðið er upp á opið hús á báðum þessum deildum. Fæðingardeild er með opið hús alla þriðjudaga kl. 19:30, panta þarf tíma í síma: 543-3606 virka daga milli kl. 8:00 og 14:00. Hreiðrið er með opið hús annan hvern miðvikudag kl. 18:00, panta þarf tíma í síma 543-3250 á virkum dögum.

Konur sem íhuga að fæða heima geta fengið frekari upplýsingar hjá sinni ljósmóður í meðgönguverndinni eða hjá Ljósmæðrafélaginu í síma 564 6099. Á heimsíðu Ljósmæðrafélagsins er listi með nöfnum og símanúmerum þeirra ljósmæðra sem sinna fæðingum í heimahúsi. Ljósmæður í meðgönguvernd geta gefið upplýsingar um aðra kosti.

Sængurlegan

Að lokinni fæðingu býðst foreldrum að dvelja í Hreiðrinu í allt að sólarhring. Þangað geta systkini komið í heimsókn og aðrir ættingjar kjósi foreldrar það.

Eftir heimkomu gefst fjölskyldunni kostur á að fá heimaþjónustu sjálfstætt starfandi ljósmóður fyrstu vikuna heima.
Sængurkvennadeild Landspítalans er fyrir þær konur og börn sem þurfa sérhæfða þjónustu í sængurlegunni. 

Ungbarnaverndin

Þegar heimaþjónustu ljósmæðra lýkur eða þegar heim er komið eftir lengri sængurlegu tekur þjónusta hjúkrunarfræðings/ljósmóður í ungbarnavernd við. Gott er að láta ungbarnaverndina á heilsugæslustöðinni vita þegar fjölskyldan er komin heim.

Bæklingar:


Yfirfarið: Í janúar 2009.
Höfundar: Karítas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður Miðstöð mæðraverndar. 
Efnið er m.a. byggt á texta eftir Dagnýju Zöega ljósmóður. Upplýsingar um fæðingardeild Landspítalans og Hreiðrið eru fengnar úr bæklingnum: Velkomin - upplýsingar um þjónustu í meðgöngu, fæðingu og sængurlegu sem Landspítali Háskólasjúkrahús gaf út í júlí 2007.
 
 
 
 
 

Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Læknisþjónusta

Læknisþjónusta Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Mæðravernd

Mæðravernd

Ungbarnavernd

Ungbarnavernd

Skólaheilsugæsla

Skólaheilsugæsla

Heimahjúkrun

Heimahjúkrun


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;