Geirvörtur eru mismunandi að stærð, lögun og lit og ekkert til sem heitir of litlar eða of stórar geirvörtur.
Liturinn á geirvörtunum er frá því að vera ljósbleikur húðlitur yfir í að vera næstum svartur. Á meðgöngu dökkna geirvörturnar og geirvörtubaugurinn. Ekkert bendir til þess að ljósar geirvörtur séu viðkvæmari en dökkar og þær eru ekki gjarnari á að særast. Geirvörtubaugar eru líka mjög misstórir.
Barnið lærir að sjúga það sem því er boðið og því skiptir gerð og útlit brjóstanna og geirvartanna ekki máli. Bera má feitt krem á þurrar geirvörtur en forðast ætti sápuþvott.
Flatar geirvörtur eða inndregnar geirvörtur valda sjaldan vandkvæðum við brjóstagjöf. Ef barnið nær vel utan um geirvörtuna og geirvörtubauginn ætti brjóstagjöf að geta gengið vel. Í byrjun getur þurft mikla aðstoð, natni og þolinmæði við að hjálpa barninu að taka brjóstið.
Móðirin ætti að reyna mismunandi stellingar við brjóstagjöf til að finna hvað hentar best. Svokölluð “fótboltastelling” hefur oft reynst vel. Dugi það ekki til má reyna sérstakar hlífar, pumpu eða önnur hjálpartæki til að toga geirvörtuna út.
Yfirfarið: Í ágúst 2008.
Höfundar: Karítas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður Miðstöð mæðraverndar.