Vandamál eru til að leysa

Vandamál eru til að leysa

Ef barnið tekur ekki brjóstið rétt eða það er ekki lagt nógu oft á brjóst geta komið upp vandamál (sárar geirvörtur, stálmi, brjóstastíflur). Oftast er fljótlegt að leysa málið ef snemma er gripið í taumana.

Hnútur í brjósti, hiti eða flensueinkenni getur verið merki um stífluð mjólkurgöng eða sýkingu. Hitameðferð fyrir gjafir (heit sturta, heitir bakstrar á brjóstin) hvíld og örar brjóstagjafir geta hjálpað. Ef það dregur ekki úr einkennum fljótt þarf að leita frekari ráða.

Ljósmæður í heimaþjónustu og á sængurlegudeildum aðstoða við brjóstagjöf og veita ráð. Á Kvennadeild Landspítala eru starfandi brjóstagjafaráðgjafar. Hægt er að hafa samband við þá í síma 543-3292. Hjúkrunarfræðingar í ungbarnaverndinni veita einnig ráð varðandi brjóstagjöfina.

Brjóstagjafaráðgjafar eru á Miðstöð heilsuverndar barna. Hægt er að hafa samband við þá í síma 585-1350. 


Yfirfarið: Í júlí 2008.
Höfundar: Karítas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður Miðstöð mæðraverndar. 

 

 

Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;