Þau lyf sem eru talin örugg á meðgöngu eru jafnframt talin örugg meðan móðir er með barn á brjósti.
Mörg lyf geta haft áhrif á magn brjóstamjólkur (t.d. samsettar getnaðarvarnartöflur) og sum lyf eru talin skaðleg ungbörnum.
Móðirin ætti því alltaf að ráðfæra sig við lækni áður en hún tekur lyf.
Yfirfarið: Í júlí 2008.
Höfundar: Karítas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður Miðstöð mæðraverndar.