Brjóstagjöf gengur betur hjá móður sem reykir ekki.
Reykingar draga úr framleiðslu á hormóninu prólaktín sem er nauðsynlegt til að framleiða brjóstamjólkina. Mæður, sem reykja, framleiða þar af leiðandi minni mjólk en þær sem reykja ekki og hætta því oft fyrr með börn sín á brjósti.
Börn þeirra foreldra sem ekki reykja fá síður kvef, hósta, eyrnabólgur, ofnæmi, astma eða önnur lungnavandamál. Þau eru almennt hraustari og værari þannig að foreldrarnir fá betri svefn og hvíld.
Yfirfarið: Í júlí 2008.
Höfundar: Karítas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður Miðstöð mæðraverndar
.