Ef móðirin drekkur áfengi þá skilar hluti alkóhólsins sér í brjóstamjólkina.
Ef áfengi er drukkið með mat skilar það sér í minna mæli í brjóstamjólkina. Drekki móðirin eitt lítið léttvínsglas tekur það líkama hennar um tvær klukkustundir að losa sig við alkóhólið. Það er ekkert hægt að gera til að flýta þessu ferli (vatns- eða kaffidrykkja, hvíld, losun brjóstamjólkur). Mælt er með að móðirin bíði tvær klukkustundir fyrir hvert léttvínsglas sem hún neytir, þar til hún gefur brjóst (tvö léttvínsglös = fjórar klukkustundir).
Áhrif áfengisneyslu móður á barnið er í beinu samhengi við það magn sem hún drekkur. Mikil áfengisneysla móður hefur þau áhrif að mjólkurframleiðslan minnkar. Einnig hefur mikil áfengisneysla móður áhrif á barnið, sem verður syfjaðra og drekkur minna en það þarf. Það dregur úr vexti og hreyfiþroska barnsins.
Vert er að hafa í huga að nýfætt barn fæðist með óþroskaða lifur og þess vegna hefur alkóhól meiri áhrif á það. Það tekur 3 mánaða barn helmingi lengri tíma að útskilja alkóhól úr líkamanum en fyrir fullorðinn einstakling.
Yfirfarið: Í júlí 2008.
Höfundar: Karítas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður Miðstöð mæðraverndar.