Í kaffi, tei (bæði grænu og svörtu), orku- og kóladrykkjum er koffín.
Sum börn eru viðkvæm fyrir koffíni og verða óvær eða eiga í erfiðleikum með svefn ef móðirin drekkur koffíndrykki. Fyrir flestar mæður er óhætt að drekka 2-3 kaffibolla á dag án þess að það hafi áhrif á barnið.
Koffínmagn er heldur minna í kóla- og orkudrykkjum en þó er æskilegt að stilla neyslu þeirra einnig í hóf.
Yfirfarið: Í júlí 2008.
Höfundar: Karítas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður Miðstöð mæðraverndar.