Móðir með barn á brjósti þarf ekki sérfæði. Venjulegur matur, fjölbreyttur og hollur er það sem þarf. Gott daglegt mataræði inniheldur ávexti, grænmeti, prótein, korn og takmarkað magn fitu og þá er ekki þörf á að taka vítamín.
Orkuþörf móðurinnar eykst sem nemur 300-500 kaloríum á dag (kkal). Það samsvarar t.d. einni brauðsneið með osti og skinku og einni dós af létt jógúrt eða tveimur brauðsneiðum með áleggi og einu glasi af appelsínusafa eða mjólk til drykkjar.Ekki er ástæða til að takmarka eða sleppa ákveðnum fæðutegundum.
Mataræði móðurinnar hefur áhrif á bragð og lykt brjóstamjólkurinnar. Þannig skynjar barnið mismunandi bragðtegundir og lykt sem hefur áhrif á matarsmekk þess síðar á ævinni.
Ekki er þörf á að drekka meiri vökva en hún er vön til að bæta upp það vökvamagn sem fer til framleiðslu brjóstamjólkur. Hún ætti að drekka þegar hún er þyrst.