Um stöðina

Um stöðina

Heilsugæslan Glæsibæ er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum Voga og Heimahverfis. Stöðin tók til starfa þann 20. janúar 2006.

Starfsemi stöðvarinnar er fjölþætt þó mest fari fyrir lækningum, ungbarna- og mæðravernd.

Á stöðinni er veitt samfelld þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga.
Tekist er á við öll heilsufarsleg vandamál og reynt að leysa úr þeim.
Ef á þarf að halda er veitt ráðgjöf við val á sérfræðiþjónustu. 

Ábendingar og athugasemdir
Þiggjum gjarnan ábendingar varðandi það sem betur má fara í þjónustu stöðvarinnar. Slíkar ábendingar eru ein af forsendum þess að við getum bætt þjónustu við íbúa hverfisins.Vinsamlegast sendið ábendingar í tölvupósti

Ef upp koma hnökrar í samskiptum skjólstæðings og starfsmanns stöðvarinnar þá hvetjum við fólk til að ræða það fyrst við viðkomandi.
Ef skjólstæðingur treystir sér ekki til að leita til hans áfram þarf að bera upp erindið við yfirmenn  stöðvarinnar og skýra málavöxtu.

Heilsugæslan vinnur samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, gæðaáætlun heilbrigðis-og tryggingamálaráðuneytis frá 1999 og í framhaldi af því stefnumótun Heilsugæslunnar í Reykjavík sem hófst árið 2000.


Heilsugæslustöð

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Glæsibær

Álfheimum 74, 104 Reykjavík
Sími: 599-1300, Fax: 599-1330
Netfang:
glaesibaer@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

Virka daga kl. 8:00 - 16:00. Síðdegisvakt kl. 16:00 - 18:00 mánudaga - fimmtudaga, 16:00 -17:00 föstudaga.

Sjá staðsetningu á korti


Strætó - Glæsibær

Leiðarnúmer Strætó:
Fara á www.bus.is


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;