Í fyrstu fær barnið broddinn sem er þykkur og rjómagulur að lit. Þó magnið sé lítið eru gæðin mikil; broddurinn er fullur af mótefnum, næringarefnum og kaloríum og nægir barninu fyrstu dagana. Smám saman eykst magnið og brjóstamjólkin þroskast. Sog barnsins örvar mjólkurmyndunina og mjólkurlosun.
Á fyrsta sólarhring fer barnið að meðaltali 4-5 sinnum á brjóst og gjöfin getur tekið 20-40 mínútur. Það tekur til sín 7-14 ml (1-2 tsk) í hverri gjöf. Á öðrum sólarhring fer gjöfum fjölgandi og stundum geta gjafir verið með mjög stuttu millibili (keðjugjafir). Síðan fer barnið að jafnaði 8-12 sinnum á brjóst á sólarhring.
Mjólkurmagnið sem barnið drekkur eykst smám saman og í lok fyrstu vikunnar er barnið að drekka 70-90 ml í einni gjöf.
Barnið sýgur ekki endilega stöðugt. Það er algengt að barnið taki sér hlé meðan á gjöf stendur. Það er merki um að mjólkin flæði vel úr brjóstinu.
Eðlilegt er að geirvörturnar verði aumar fyrstu vikuna en móðirin á ekki að finna sviða eða stingi á meðan barnið sýgur. Það er merki um að barnið er ekki að taka brjóstið rétt. Mikilvægt er að taka barnið af brjóstinu og reyna aftur. Setja má fingur í munnvik barnsins til þess að losa sogið.
Ef það koma sár eða blöðrur þarf að leita aðtoðar sem fyrst.
Sjá kaflann: Rétt staða og grip