Faðirinn hefur líka áhuga á brjóstagjöf og því að annast barnið sitt.
Hann er að aðlagast nýju hlutverki og mynda tengsl við barnið og taka á sig ábyrgð á fjölskyldunni. Faðirinn styður móðurina sem er að ganga í gegnum miklar breytingar og safna kröftum eftir meðgöngu og fæðingu.
Þó að faðirinn geti ekki gefið brjóst getur hann lagt verulega mikið af mörkum með almennum stuðningi og hlýju, til þess að allt gangi vel. Hann sér til þess að móðirin hvílist og að móðir og barn hafi næði við brjóstagjöf. Barnið þarfnast samveru við báða foreldra. Hlý og náin tengsl föður veita barninu öryggi. Faðirnn heldur á barninu sínu, horfir á það, talar við það, róar og vaggar. Hann hjálpar barninu að ropa og skiptir um bleyju.
Sameiginleg reynsla móður og föður af brjóstagjöf og samskipti þeirra við barnið skapar skilyrði fyrir góðu fjölskyldulífi.
Þú og barnið þitt eruð einstök heild og þú verður fljót/fljótur að læra að þekkja þarfir barnsins þíns
Yfirfarið: Í ágúst 2008.
Höfundar: Karítas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður Miðstöð mæðraverndar.