Meðgöngukvillar - Hvað er til ráða?

Meðgöngukvillar - Hvað er til ráða?

Kvenlíkaminn hefur þann stórkostlega hæfileika að laga sig stöðugt að breyttu hlutverki á meðgöngu og þannig hlúir hann að hinu nýja, vaxandi lífi og undirbýr fæðinguna.

Meðgöngukvillar eru einstaklingsbundnir og misjafnt er hversu mikið og hversu lengi konur finna fyrir þeim. Líðanin getur verið breytileg hjá sömu konunni eftir því sem líður á meðgönguna.

Meðgöngukvillar eru ekki hættulegir þó þeir geti verið slæmir og valdið vanlíðan. Þeir hafa ekki áhrif á hvernig barnið dafnar í móðurkviði, hvernig fæðingin kemur til með að ganga eða hvernig líðan móður og barns verður eftir fæðinguna.


Við flestum meðgöngukvillum eru til ráð sem draga úr einkennum en við sumum er minna hægt að gera. Það er mikilvægt að hafa í huga að meðgöngukvillar vara tímabundið og konan ætti að njóta þess að takast á við þá reynslu sem meðgangan er.

Í meðgönguverndinni gefst tækifæri til að ræða líðan og fá ráð og stuðning.

Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.

Meðgöngukvillar-Hvað er til ráða? - Heimildir.
1. Ása Halldórsdóttir, Áslaug Hauksdóttir og Karítas Ívarsdóttir. 4. útg. (2006)  Fæðingarfræðsla fyrir verðandi foreldra.
2. Bennett, V.R. og Brown, L.K. (1999) Myles Textbook for Midwifes. Churchill Livingstone
3. Bermas, B.L. Pain related to the musculoskeletal system during pregnancy. Official Reprint from UpToDate® Maí 2008. Sótt í maí 2008.
4. Bianco, A. Maternal gastrointestinal tract adaption to pregnancy. Official Reprint from UpToDate® Janúar 2008. Sótt í maí 2008.
5. Enkin,M.; Keirse, J.N.C. Renfrew,M. og Neilson,J. (2000) A guide to effective care in pregnancy and childbirth. Oxford University Press
6. Foley, M. R. Maternal cardiovascular and hemodynamic adaption to pregnancy. Official Reprint from UpToDate® Oktober 2007 . Sótt í maí 2008.
7. Funai. E. F., Gillen-Goldstein, J., Roqué, H. Changes in the respiratory tract during pregnancy. Official Reprint from UpToDate® Desember 2007 Sótt í maí 2008.
8. Funai. E. F., Hayslett, J.P. Renal and urinary tract physiology in pregnant women. Official Reprint from UpToDate® September 2007. Sótt í maí 2008.
9. Gaskin, I. (2003) Ina Mays guide to Childbirth. Bantam Dell, Random House Inc.
10. Hulda Jensdóttir. (2003) Upphafið Bréf til þín frá ljósunni þinni. Salka Reykjavík
11. Ingólfur V. Gíslason. (2002) Pabbi, bók fyrir verðandi feður. Mál og menning
12. Lennart Nilsson, Lars Hamberger. (2004) Barn verður til.  Vaka-Helgafell
13. Pomeranz, M.K. Physiologic changes of the skin, hair, nails, and mucous membranes during pregnancy. Official Reprint from UpToDate® Janúar 2008.  Sótt í maí 2008.
14. Robertson, A. (1999) Preparing for Birth: Mothers. ACE graphics 3.. útg.
15. Schott, J, Priest,J. (2002) Leading Antenatal Classes, A practical guide. Books for Midwifes,  2nd edition


 

 


 

 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;