Á heilsugæslustöðinni eru starfandi átta sérfræðingar í heimilislækningum.
Læknarnir hafa bókaða tíma og er hver tími venjulega 15 mínútur. Nauðsynlegt er að panta tíma nema um skyndileg veikindi eða slys sé að ræða. Oftast fæst tími innan 1 - 2ja daga.
Í áríðandi tilvikum er alltaf hægt að fá þjónustu og ef heimilislæknirinn er ekki viðlátinn sinnir vakthafandi læknir/hjúkrunarfræðingur erindinu.
Heimilislæknar stöðvarinnar fara í vitjanir til þeirra sem af heilsufarsástæðum geta ekki komið til viðtals á stofu. Læknisvitjanir utan hverfis geta verið erfiðleikum bundnar.
Námslæknar eru oft starfandi á stöðinni. Þeim er leiðbeint af sérfræðingum stöðvarinnar og leita til þeirra við lausn vandamála, þegar þörf krefur.
Barnalæknir tekur þátt í ungbarnavernd stöðvarinnar.
Tölvupóstþjónusta: Eins og staðan er í dag er ekki gert ráð fyrir að læknar stöðvarinnar svari tölvupósti í vinnutíma sínum. Tölvupóstsendingar eru á ábyrgð sendanda og óvíst með öllu að tölvupósti sé svarað nema sérstaklega sé samið um það við viðkomandi lækni.