Skoðanir og bólusetningar

Skoðanir og bólusetningar

Hér má sjá yfirlit yfir skoðanir og bólusetningar í ung- og smábarnavernd eftir mismunandi aldri:

Aldur Hver skoðar Hvað er gert
< 6 vikna  Hjúkrunarfr.  Heimavitjanir 
6 vikna  Hjúkrunarfr. og læknir   Skoðun 
9 vikna  Hjúkrunarfr.  Heimavitjun eða skoðun á heilsugæslustöð 
3 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
5 mánaða  Hjúkrunarfr.  Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
6 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C 
8 mánaða  Hjúkrunarfr.  Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C 
10 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun 
12 mánaða  Hjúkrunarfr.  Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
18 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun og bólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu, PEDS Mat foreldra á þroska barna 
2 1/2 árs  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun 
3 ára  Tannlæknir  Forvarnarskoðun - tanneftirlit. Ókeypis skoðun hjá tannlæknum sem vinna í umboði Sjúkratrygginga Íslands. Nauðsynlegt að skoðun fari fram áður en barnið nær fjögurra ára aldri.  
4 ára  Hjúkrunarfr.  Skoðun, sjónpróf, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki og stífkrampa í einni sprautu 

Ung- og smábarnavernd styðst við handbókina Ung- og smábarnavernd - Leiðbeiningar um heilsuvernd barna 0-5 ára  sem Landlæknisembættið gefur út. Handbókin er ætluð fagfólki en er einnig mjög gagnleg fyrir foreldra ungra barna. Eingöngu er um rafræna útgáfu að ræða og er hún á vef Landlæknisembættisins. Þar er líka að finna ítarefni og hægt að skoða einstaka kafla handbókarinnar.

Nánari upplýsingar um ung- og smábarnavernd má fá á síðum Ung- og smábarnaverndarsviðs Þróunarstofu heilsugæslunnar.


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Læknisþjónusta

Læknisþjónusta Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Mæðravernd

Mæðravernd

Ungbarnavernd

Ungbarnavernd

Skólaheilsugæsla

Skólaheilsugæsla

Heimahjúkrun

Heimahjúkrun


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;