Útvíkkunartímabil - forstig

Útvíkkunartímabil - forstig

Á forstigi fæðingar geta samdrættirnir verið missterkir og óreglulegir, það er mislangt er á milli þeirra (5 – 20 mín.) og leghálsinn opnast því hægt. Samdrættirnir halda þó stöðugt áfram, verða sterkari og reglulegri og leghálsinn opnast æ meir. Á forstigi fæðingar opnast leghálsinn frá 0-3 (á skalanum 0-10 sentimetrar). Forstigið getur tekið mislangan tíma, en almennt tekur það styttri tíma  hjá fjölbyrju en frumbyrju.

Sóttin er oftast væg á þessu stigi. Konan finnur verkjaseiðing sem leiðir aftur í bak og minnir á túrverki. Leghálsinn er byrjaður að þynnast örlítið og opnast. 

Hvað getur þú gert?

Gott er að taka lífinu með ró. 

Á forstigi fæðingar er best að vera heima í því umhverfi sem þú getur látið fara notalega um þig. Þannig kemst þú hjá því að eyða of löngum tíma á sjúkrahúsi. Það er gott að spara orkuna en halda þó áfram daglegri iðju eins og þú treystir þér til. Ef fæðing byrjar að nóttu, er miklvægt að hvílast og sofa eins og mögulegt er. 


Ekki sleppa því að borða, jafnvel þótt fæðingin byrji að nóttu til. Gott er að fá sér eitthvað létt, næringarríkt og auðmeltanlegt (pasta, ristað brauð, súpu).  Sturta, bað og nudd hjálpa þér  að slaka á og takast á við samdrættina. Einnig hjálpar að breyta reglulega um stöður/stellingar. Hafðu tösku tilbúna, með öllu því, sem þú ætlar að hafa með þér á fæðingarstað.
Þegar sterkir og reglulegir samdrættirnir hafa staðið yfir í klukkustund eða lengur, með 2-5 mín. millibili og þér finnst ekki lengur þægilegt að vera heima, hafðu þá samband við ljósmóður á fæðingarstað. Þegar samdrættirnir koma með svona stuttu millibili er talað um virkt stig fæðingar. 
 

Ef legvatnið rennur, skaltu hafa samband við ljósmóður í mæðraverndinni eða á fæðingarstað.

Sjá kaflann:  Útvíkkunartímabil fæðingar - virkt stig

Ef sárir og reglulegir samdrættir byrja fyrir 37 vikna meðgöngu, ættir þú að hringja á fæðingarstað.

Ef mikið blæðir frá leggöngum, meira en sem nemur ca. 15-30 ml (1-2 matskeiðum), ættir þú að hringja og fara strax á fæðingarstað, jafnvel í sjúkrabíl.


Yfirfarið: Í ágúst 2008. 
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.

 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;