13-26 vikur

13-26 vikur

Barnið

          • Hefur tekið á sig greinilega mannsmynd
          • Líffærin stækka og þroskast
          • Andlitsdrættir skýrast
          • Allur líkaminn er þakinn fíngerðu dúnkenndu fósturhári
          • Hár og augabrúnir vaxa
          • Litfrumur í hárum myndast
          • Opnar augun í 26. viku
          • Hreyfingar verða kröftugri
          • Lengd frá hvirfli til ilja við 24 vikur er um 30 sm
          • Þyngdin við 24 vikur er um 700 g

Barnið heldur áfram að vaxa og hefur tekið á sig greinilega mannsmynd. Líffærin sem höfðu myndast öll á fyrsta tímabili eru nú að stækka og þroskast og andlitsdrættir eru að skýrast. Allur líkaminn er þakinn fíngerðu dúnkenndu fósturhári sem hverfur fyrir fæðingu. Það eru komin hár á koll barnsins og fíngerðar augabrúnir. Í 16 – 20 viku hefst myndun litfruma í hárunum. Augnlokin sem huldu augun opnast í 26. viku.

Barnið hreyfir sig svipað að degi og nóttu og það sefur aldrei nema nokkrar mínútur í einu. Hreyfingar barnsins verða kröftugri. Barnið réttir og kreppir fæturna og æfir fótaspörk. Í leginu er nóg rými fyrir barnið til þess að hreyfa sig og skipta um stöðu. Barnið nýtur þess að vera vaggað í legvatninu með hreyfingum móðurinnar.

Móðirin

tight

          • Brjóstin halda áfram að stækka
          • Legið stækkar hratt og kúlan kemur í ljós
          • Togverkir
          • Brjóstsviði
          • Ógleðin á undanhaldi
          • Þreytan á undanhaldi
          • Meiri orka
          • Finnur fyrstu hreyfingar barnsins

 

 

 


Brjóstin halda áfram að stækka og legið stækkar í takt við barnið sem vex ört. Kúlan kemur í ljós. Þessar breytingar kalla á breytingu á klæðaburði. Togverkir í nára geta enn gert vart við sig. Brjóstsviði er kvilli sem margar konur finna fyrir á meðgöngu. Ástæðan er meðal annars sú að stækkandi leg þrýstir á maga móðurinnar, vöðvar við magaopið eru slakari og loft og magasýrur berast upp í vélindað.

Á þessu tímabili meðgöngunnar líður móðurinni jafnan vel; ógleðin er oftast horfin, þreytan er á undanhaldi og orkan er meiri. Sumum konum finnst þeim jafnvel aldrei líða eins vel og um miðbik meðgöngunnar.

Fyrstu hreyfingar barnsins birtast í fyrstu eins og loftbólur eða ólga í maganum en smám saman skynjar móðirin greinileg spörk og hreyfingar sem gefa henni staðfestingu á lífinu sem vex innra með henni.

tightPabbinn fer ef til vill að finna fyrir vaxandi ábyrgðartilfinningu og fjölskylduhugsunin fer að gera vart við sig. Þungunin verður raunverulegri því í lok þessa tímabils getur pabbinn þreifað á hreyfingum barnsins.

Lesa meira:

fyrsta tímabil 0-12 vikur
þriðja tímabil 27. vika og fram að fæðingu

 
Yfirfarið: júní 2011.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.

 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;