Á ung- og smábarnasviði Þróunarstofu er sérhæfð ung- og smábarnavernd fyrir börn fædd fyrir 32 vikna meðgöngu og/eða með fæðingaþyngd undir 1500 g. Þar starfa hjúkurnarfræðingar sem einnig eru brjóstagjafaráðgjafar og barnalæknar sem hafa sérhæft sig í ung- og smábarnavernd.
Markmiðið er að fylgjast reglulega með heilsu og þroska fyrirburanna og veita foreldrum stuðning, þannig að börnunum séu búin bestu hugsanlegu uppvaxtarskilyrði á hverjum tíma. Unnið er í náinni samvinnu við Vökudeild Barnaspítala Hringsins, Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins og heilsugæslustöðvar.
Hjúkrunarfræðingar fara í fyrstu heimsóknina til barnsins og foreldra þess á Vökudeildina áður en barnið útskrifast þaðan. Síðan fær fjölskyldan heimavitjun strax daginn eftir útskrift. Fjöldi heimavitjana fer eftir þörfum, 1-2 sinnum í viku til að byrja með. Í heimavitjunum er barnið skoðað, vigtað, höfuðummál mælt og fylgst er með þroska. Ennfremur fá foreldrar ráðleggingar varðandi umönnun barnsins, næringu, brjóstagjöf og eigin líðan.
Þau börn sem búa utan höfuðborgarsvæðisins munu af landfræðilegum ástæðum ekki geta nýtt sér heimaþjónustu frá ung- og smábarnasviði. Náið samstarf verður við viðkomandi heilsugæslustöð og börnunum standa til boða skoðanir eftir að göngudeildareftirlit LSH lýkur. Sambærileg ung- og smábarnavernd fyrirbura er í Heilsugæslunni í Firði og Sólvangi í Hafnarfirði.
Fyrsta heimsókn á Þróunarstofu fer eftir aldri barnsins við útskrift og hvenær barnið er í eftirliti hjá LSH. Við þriggja mánaðar aldur hefjast bólusetningar. Frá þeim tíma kemur barnið reglulega í skoðun og bólusetningar. Heimsóknir og skoðanir eru einstaklingsmiðaðar. Gert er ráð fyrir að sum börn þurfi fleiri heimsóknir en önnur. Fylgst verður sérstaklega með þroska og hegðun barnanna og þeim vísað í þverfaglegt þroskamat eftir þörfum.
Skoða bækling um fyrirbura (pdf-skjal)