Allir eldri en 60 ára ættu á láta bólusetja sig á 10 ára fresti gegn pneumokokkum til að verjast pneumokokkalungabólgu.
Bólusetning gegn pneumókokkum getur einnig verið gagnleg hjá eftirtöldum hópum:
- Einstaklingar (börn og fullorðnir) með ónæmisbælandi sjúkdóma
- Einstaklingar án milta vegna slyss eða sjúkdóms (asplenia)
- Einstaklingar á ónæmisbælandi meðferð
- Einstaklingar með HIV sýkingu
- Einstaklingar með langvarandi hjarta-, lungna- og nýrnasjúkdóma
- Einstaklingar með sykursýki
- Einstaklingar sem þurfa að undirgangast kuðungs (cochlear) ígræðslu
- Einstaklingar með mænuvökvaleka