HÆTTUM AÐ REYKJA!
Á árinu 2007 byrjuðu aftur námskeið gegn reykingum á Göngudeild sóttvarna, Þönglabakka 1 í Mjóddinni. Um er að ræða stuðnings- og lyfjameðferð með hópfundum fjórum sinnum og síðan einstaklingsbundnu eftirliti í eitt ár. Sjá hvenær námskeiðin eru.
Námskeiðsgjald er 10.000 kr og 15.000 kr fyrir hjón. Þessi námskeið passa vel fyrir þá, sem ítrekað hafa reynt en ekki tekist að ná varanlegu reykbindindi.
Námskeiðin verða haldin reglulega fyrsta þriðjudag hvers mánaðar frá september til nóvember og frá janúar til maí.
Tekið er á móti pöntunum í síma 585-1390, en einnig er unnt að skrá sig í ms@ms.hg.is