Heilsugæslan Hvammi er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum Kópavogs sem búa austan Digranesvegar og Bröttubrekku, sunnan Kópavogslækjar (Fífuhvamms) og sunnan Nýbýlavegar (með Hólmum).
Ef þú býrð á þjónustusvæðinu getur þú skráð þig á stöðina. Skráning fer fram hjá móttökuriturum.
Í afgreiðslu heilsugæslustöðvarinnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma.
- Yfirlæknir: Sigurður V. Guðjónsson
- Yfirhjúkrunarfræðingur: Sigríður A. Pálmadóttir
- Hjúkrunarstjóri: Ástþóra Kristinsdóttir
- Skrifstofustjóri: Guðbjörg Guðmundsdóttir
Tímapantanir mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8:00 til 17:00 og föstudaga frá kl. 8:00 til 16:00 í síma 594-0400
Lyfjasími 594-0416
Læknaritarar taka niður beiðnir um lyfjaendurnýjun frá kl. 8:00 til 10:00 alla virka daga í síma 594-0416. Nánari upplýsingar